Nafnið “Drop in” tímar vísar til þess að hægt er að “detta inn” í tímann án þess að skrá sig fyrirfram. Allir SólóSalsa tímar sem eru í boði hjá SalsaIceland eru drop in tímar. SólóSalsa tímarnir eru auglýst og seld sem námskeið, en eru svo opin fyrir drop in nemendur. Þú kemur og gerir upp tímann með reiðuféi eða millifærslu hjá kennara tímans.
Tegundir algengustu drop in tímanna okkar:
SólóSalsa: Við bjóðum SólóSalsa tíma á þremur getustigum þar sem við dönsum stuttar rútínur af skemmtilegum sporum sem koma púlsinum af stað og láta danshjartað syngja.
ChaChaCha: Unisex tímar þar sem dansað er footwork í chachacha takti sem er stórskemmtileg viðbót við salsað. ChaChaCha tónlistin ómar oft á danskvöldum, og takturinn blandast vel við salsasporin. Sólódans, þ.e.a.s. ekki parfléttur, nema það sé tekið fram.
Athugið að hefðbundnu salsanámskeiðin okkar þar sem við dönsum við félaga, og showsalsa námskeiðin okkar eru ekki drop in tímar.