Home

SólóSalsa

SólóSalsa

Í SólóSalsa eltum við kennara og dönsum stök – stuttar rútínur af skemmtilegum sporum sem koma púlsinum af stað og láta danshjartað syngja. Þannig æfa nemendur danstæknina sína stakir og fá heilsubót í kaupbæti. Þetta eru dásamlegir „feelgood“ tímar þar sem tónlistin ræður ríkjum. Við notum mest latín tónlist í ólíkum ryþmum og leyfum dansgleðinni að njóta sín. Tímarnir eru á þremur getustigum og eru oftast í boði 3 daga vikunnar. Þá má stunda á námskeiðsformi sem er ódýrast, og það er einnig hægt að koma í staka tíma þegar manni hentar. Hér má sjá framboðið á SólóSalsa tímum um þessar mundir.